„Ég sannfærði sjálfa mig um að ég væri of feit“

Söngkonan Ellie Goulding.
Söngkonan Ellie Goulding. mbl.is/AFP

Breska söngkonan Ellie Goulding var í viðtali hjá Cosmopolitan á dögunum þar sem hún opnaði sig og sagði frá kvíðaköstunum, óöruggi sínu og sambandinu við  fyrrverandi kærastann.

„Ég fór í gegnum tímabil þar sem ég var mjög óörugg með sjálfa mig. Ég hafði sannfært mig um að ég væri of feit. Ég var ekki ánægð með líkama minn og mér fannst ég vera með stórt nef. Nú hins vegar er ég á stað þar sem ég er ekki að einblína á þessa hluti,“ viðurkenndi Goulding og bætti við: „Mér líður eins og ég sé ekki að breyta mér fyrir einhvern annan, heldur fyrir sjálfa mig. Af því að enginn annar er að fara gera það fyrir mig.“

Söngkonan sagði einnig frá kvíðaköstunum sem hún fengi og á einu tímabili var hún sannfærð um að hún væri að fara deyja.

„Einn daginn var ég í lestinni á leið í jarðaför og hjartað í mér sló hratt; ég hélt að ég væri að fá hjartaáfall,“ sagði hún í samtali við blaðið samkvæmt heimildum Daily Mail.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Varastu að gera nokkuð það sem getur valdið misskilningi um fyrirætlanir þínar. Aðeins vel upplýstur maður getur innt þau störf af hendi, sem þér eru falin.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lucinda Riley og Lucinda Riely
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Lotta Luxenburg