Leikarinn Sean Hayes, sem er þekktastur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Will & Grace, trúlofaðist kærastanum nýverið.
Hayes og kærasti hans, Scott Icenogle, hafa verið saman í um sjö ár en þar var ekki fyrr en nýlega sem þeir opinberuðu að þeir væru trúlofaðir.
Talsmaður Hayes tilkynnti að hann væri trúlofaður en vildi ekki gefa frekari upplýsingar.
Þessar fréttir koma á sama tíma og að talsmaður Debru Messing sem lék Grace í Will & Grace staðfesti að hún væri hætt með kærasta sínum til þriggja ára.