Hélt hún væri í Amazing Race

Skjáskot

Justin vissi að hann vildi biðja unnustu sinnar Díönu undir norðurljósunum á Íslandi eftir að hafa þekkt hana í sex mánuði. Sjö árum síðar skipulagði hann ævintýri í anda raunveruleikaþáttanna Amazing Race sem náði yfir sex ríki Bandaríkjanna og lauk loks með ferð hingað til lands.

Fyrst varð að sannfæra Díönu um að hún væri raunverulega í Amazing Race. Til þess réð Justin myndatökumann sem mætti með fyrstu vísbendinguna í vinnuna til hennar í borginni Fíladelfíu þar sem hún starfar sem kennari. Með fylgdu þau skilaboð að hún hefði verið valin til þess að taka þátt í fyrstu netútgáfunni af Amazing Race sem færi fram á einungis 24 klukkustundum.

Justin leigði einnig bílaleigubíl sem hún fékk til afnota. Fyrst þurfti hún að fara á safn í Delaware-ríki og finna næstu vísbendingu sem leiddi hana til Justins sem eins og sakleysið uppmálað þóttist sömuleiðis hafa verið valinn til þáttöku í leiknum. Þaðan fóru þau til New Jersey-ríkis og síðan til New York-ríkis þar sem þau þurftu að leysa ákveðin verkefni og loks til borgarinnar Boston þar sem þau fengu kennslu í frönsku.

Þar fengu þau að vita að þau hefðu unnið keppnina og verðlaunin væru ekki af verri endanum: Ferð til Íslands. Brottför samstundis. Þau fóru því til Íslands og eftir að hafa meðal annars farið í Bláa lónið, fengið sér íslenskar pylsur og skoðað Geysissvæðið í Haukdal fór Justin loks niður á skeljarnar og bar upp bónorðið undir norðurljósunum. Rétt eins og hann hafði séð fyrir sér að gera sjö árum fyrr. Og hvað haldið þið að Díana hafi sagt?

Einmitt!

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="315" src="//www.youtube.com/embed/nrNgL0dHXdQ" width="560"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson