Móðir brúðarinnar klæddist...

Kjóllinn er svartur og blár. Já, þessi kjóll!
Kjóllinn er svartur og blár. Já, þessi kjóll! Tumblr/Caitlin McNeill

„Það sem gerðist var að tveir nánir vinir mínir voru að gifta sig og móðir brúðarinnar tók mynd af kjólnum sínum til að senda dóttur sinni. Þegar vinkona mín sýndi unnusta sínum kjólinn, voru þau ósammála um litinn.“

Svona útskýrir skoska tónlistarkonan Caitlin McNeill hvernig internetfyrirbærið #thedress fór af stað. Fólk út um allan heim hefur deilt um það hvernig kjóll móður brúðarinnar er á litinn, en sumir sjá blátt/svart á meðan aðrir sjá hvítt/gyllt.

Frétt mbl.is: Þess vegna er kjóllinn blár

Deilurnar sem slíkar eru þó ekki það sem vekur mesta athygli, heldur er fólk undrandi á því að fjöldi fólks sjái sömu mynd með svo ólíkum hætti.

Í gær birti McNeill myndina umdeildu á Tumblr. „Vinsamlegast hjálpið mér - er þessi kjóll hvítur og gylltur eða blár og svartur? Ég og vinir mínir komumst ekki að sameiginlegri niðurstöðu og erum að f****** fríka ú,“ skrifaði hún undir.

Myndin fór eins og eldur í sinu um netheima og fjöldi einstaklinga og fréttamiðla hefur tjáð sig um málið.

En hvert er svarið við stóru spurningunni; hvernig er kjólinn á litinn?

„Augljóslega var hann blár og svartur,“ segir McNeill, sem barði kjólinn augum í brúðkaupinu.

Time sagði frá.

Hvernig er kjóllinn á litinn?

McNeill hefur staðfest að þetta er kjóllinn sem um ræðir …
McNeill hefur staðfest að þetta er kjóllinn sem um ræðir en hann fæst hjá Roman Originals. Hvíta/gyllta liðið er náttúrulega ekki að kaupa þetta. Roman Originals/www.romanoriginals.co.uk
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson