Móðir Beyoncé gifti sig um helgina

Tina Knowles og Richard Lawson.
Tina Knowles og Richard Lawson. AFP

Fregnir herma að Tina Knowles, móðir söngkonunnar Beyoncé Knowles, hafi gift sig um helgina. Slúðurpressan vestanhafs segir Tinu hafa gifst kærasta sínum, leikaranum Richard Lawson, á sunnudaginn.

Tina mun hafa gengið í það heilaga á snekkju við strönd Kaliforníu. Nokkrir vinir og fjölskylda þeirra Tinu Knowles og Lawson voru viðstaddir athöfnina samkvæmt heimildum Contactmusic. Brúðkaupsgestum var þá gert að klæðast hvítu frá toppi til táar. Systurnar Beyoncé og Solange mættu í brúðkaupið ásamt eiginmönnum sínum og börnum.

Foreldrar Beyoncé skildu árið 2011 eftir 30 ára hjónaband. Tveimur árum seinna byrjaði Tina Knowles svo með Lawson. Lawson, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Poltergeist, á eina dóttur frá fyrra hjónabandi, leikkonuna Biönku Lawson.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson