Í kvöld verða aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Cannes afhent, en eins og vanalega er borgin full af skærustu stjörnum hvíta tjaldsins sem mæta til hátíðarinnar. Ljósmyndarinn Halldór Kolbeins er staddur á hátíðinni og á meðfylgjandi myndum má sjá þegar margar af stærri stjörnum kvikmyndageirans mættu á aðalverðlaunahátíðina í dag.
Meðal annars eru á staðnum Michael Caine, Jane Fonda, Cate Blanchett, Salma Hayek, Matthew McConaughey, Colin Farrell og Harvey Keitel.
Í gær vann íslenska myndin Hrútar til verðlauna á hátíðinni, en það var í fyrsta sinn í 68 ára sögu keppninnar sem íslensk kvikmynd í fullri lengd vinnur til verðlauna á hátíðinni.