Það getur reynst þrautin þyngri að ganga steinalagðar götur í háum hælum, hvað þá að hlaupa þær. Má því telja það mikla mildi að enginn hafi brotið ökla í dragkapphlaupinu sem fram fór í Madrid í dag í tilefni af Gay pride í borginni.
Uppátækið er bókstafleg túlkun á orðunum „drag race“ sem á íslensku myndi útleggjast sem spyrnukeppni. Hælarnir sem drottningarnar notuðust við voru misháir og mismóðins en til mikils var að vinna því sigurvegarinn hlaut 500 evrur að launum.