Hnerrandi litlir broddgeltir

Litlu broddgeltirnir eru eins og litlar kúlur með smá trýni.
Litlu broddgeltirnir eru eins og litlar kúlur með smá trýni. Skjáskot af Youtube

Myndskeið af hnerrandi litlum, munaðarlausum broddgöltum hefur farið sem eldur í sinu um netið. Mögulega hnerra þeir þegar smá dropi af naglalakki er settur á bak þeirra til aðgreiningar.

„Þetta er hnerri, eða kannski hiksti, að minnsta kosti er þetta mjög sætt,“ heyrist dýralæknirinn segja á myndskeiðinu. Og það eru orð að sönnu. 

Broddgeltirnir þrír fundust einir og yfirgefnir í kofa og var komið til starfsmanna Wildlife Aid á Bretlandseyjum.

Talið er að styggð hafi komið að móðurinni er hún fæddi litlu krílin í kofanum. Talið er að þeir hafi verið um sólarhrings gamlir er þeir komust í hendur dýraverndunarsamtakanna.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson