Vefsíðan Latest Sightings hefur birt dásamlegt myndband af fílsunga eltast við svölur, til að kæta þá sem syrgja nú ljónið Cecil. Vefsíðan safnar myndefni frá gestum Kruger þjóðgarðsins í Suður-Afríku og deilir m.a. á Facebook.
Síðan var stofnuð af Navad Ossendryver, sem varð að grípa til sinna ráða þegar foreldrar hans nenntu ekki lengur að stoppa bíla í nágrenni þjóðgarðsins til að Navad gæti spurt fólk hvað það hefði séð í garðinum.
Myndbandið hefur ekkert eiginlegt fréttagildi, en það er ógurlega krúttlegt og það er að koma verslunarmannahelgi.
<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/kIy5aiRdtrc" width="560"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>