Lýsa eftir tvífara Justin Bieber

Tobias Strebel hefur eytt um 13 milljónum króna í lýtaaðgerðir …
Tobias Strebel hefur eytt um 13 milljónum króna í lýtaaðgerðir til þess að líkjast Justin Bieber. Skjáskot af vef The Independent

Lögreglan í Los Angeles lýsir nú eftir hinum 35 ára gamla Tobias Strebel sem er tvífari Justin Bieber. Strebel hefur eytt um 13 milljónum króna í lýtaaðgerðir til þess að líkjast poppstjörnunni.

„Það sem færði mig nær Bieber var allur pakkinn, fallegu kinnarnar, björtu augun, varirnar og hárið. Hann er einstaklega fallegur,“ sagði Strebel í viðtali í þættinum Botched.

Samkvæmt The Independent sást síðast til Strebel þann 18. ágúst í Vestur-Hollywood. Lögreglan telur að hann hafi verið að keyra gráan Toyota Camry frá árinu 2009.

„Það er afar skrýtið að hann hafi horfið. Hann hefur aldrei látið sig hverfa áður,“ sagði Mel Espinoza vinur Strebel í viðtali við ABC News.   

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir