Everest stefnir á toppinn

Baltasar Kormákur á forsýningu myndarinnar Everest á Íslandi.
Baltasar Kormákur á forsýningu myndarinnar Everest á Íslandi. AFP

Kvikmyndin Everest stefnir í að verða sú erlenda mynd Baltasars Kormáks sem mestum tekjum hefur halað inn. Samkvæmt upplýsingum Rvk studios mun myndin ná 100 milljónum dollara í tekjur á heimsvísu í dag aðeins tíu dögum eftir frumsýninguna. Myndin var sú fjölsóttasta í fimmtán löndum.

Í Bretlandi, Írlandi, Nýja Sjálandi og Íslandi var Everest númer eitt aðra helgina í röð. Í Rússlandi var myndin í fyrsta sæti og með 53% af miðasölu. Á Íslandi hafa 35 þúsund manns séð myndina til þessa.

Í minnisblaði kvikmyndaversins NBC/Universal sem Rvk studios vísar til kemur fram að Everest hafi halað inn 33,8 milljónum dollara utan Bandaríkjanna um helgina. Alls hafi séu tekjur af myndinni þar því 73,7 milljónir dollara. Þegar tekjurnar frá sýningum í Bandaríkjunum bætist við séu heildartekjurnar af myndinni nærri 100 milljónum dollara.

Í frétt á vef Forbes kemur fram að Everest hafi kostað um 55 milljónir dollara í framleiðslu

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson