Lygin á samfélagsmiðlum

Essena O'Neill sendir samfélagsmiðlum tóninn.
Essena O'Neill sendir samfélagsmiðlum tóninn.

Unglingastjarna á Instagram hefur birt tilfinningaþrungnar yfirlýsingar um dökkar hliðar samfélagsmiðla og hefur breytt textum með myndum af sér sjálfri og eytt myndum á Instagram. Segir hún í þær gegnsýrðar af sjálfsdýrkun og sýni ekki rétta mynd. 

Ástralska ungstirnið Essena O'Neill, 18 ára, er með hálfa milljón fylgjendur á Instagram og hefur töluverðar tekjur af veru á samfélagsmiðlum. Hún náði heimsfrægð á samfélagsmiðlum með því að birta myndir af sér og hennar fullkomna lífstíl. En í dag hefur hún fengið nóg og segist vera orðin háð því að fá viðurkenningar frá fylgjendum (like).

Í sautján mínútna löngu myndskeiði sem hún birtir á YouTube aðgangi sínum heitir hún því að berjast gegn óheilbrigðri hugsun á samfélagsmiðlum. Hún hefur sett upp vef þar sem hún lýsir (ó)menningunni á samfélagsmiðlum. Hún eyddi til að mynda tvö þúsund myndum af sér á Instagram þar sem, að eigin sögn, þær þjónuðu engum tilgangi öðrum en að koma henni sjálfri á framfæri. Eins gerði hún ýmsar breytingar á svæðum sínum á öðrum samfélagsmiðlum.

„Ég vil ekki styðja samfélagsmiðla sem græða milljarða á auglýsingum sem ég er ekki sátt við,“ segir O'Neill.

„Ég hef einnig eytt klukkutímum í að horfa á fullkomnar stúlkur á netinu og óskað mér að ég væri þær. Þegar ég varð ein af þeim þá var ég enn óhamingjusöm og ósátt við sjálfa mig.“

Hún segist vera að fara yfir texta og myndir sem enn eru á Instagram svæði hennar og þar muni hún upplýsa um hvernig átt hefur verið við myndirnar áður en þær birtust.

„Samfélagsmiðlar eru ekki raunveruleikinn. Þetta er kerfi sem byggir á viðurkenningum samfélagsins, „lækum (like)“, staðfestingum á áhorfi, fjölgun á fylgjendum,“ segir Essena O'Neill, samkvæmt BBC. 

Essena O'Neill sendir samfélagsmiðlum tóninn.
Essena O'Neill sendir samfélagsmiðlum tóninn.

Meðal annars hefur hún endurbirt færslur af sér þegar hún var fimmtán ára gömul í æfingarfatnaði þar sem hún bætir við texta um það hvernig talning á kaloríum og öfgafullar æfingar urðu að daglegri rútínu í hennar lífi.

Essena O'Neill sendir samfélagsmiðlum tóninn.
Essena O'Neill sendir samfélagsmiðlum tóninn.

„Allir þeir sem eru háðir frægð á samfélagsmiðlum, líkt og ég var, eru ekki meðvitaðir,“ skrifar hún. 

Í annarri Instagram færslu þar sem hún sést í bikini skrifar hún að maginn hafi verið dreginn inn, brjóstum lyft og stellingin uppstillt. Hún segist vilja láta allar unglingsstúlkur vita af því að þetta er ekki eftirsóknarvert líf heldur líf athyglissjúkrar manneskju.

Essena O'Neill sendir samfélagsmiðlum tóninn: Hér er hún fimmtán ára …
Essena O'Neill sendir samfélagsmiðlum tóninn: Hér er hún fimmtán ára gömul í æfingarfatnaði þar sem hún bætir við texta um það hvernig talning á kaloríum og öfgafullar æfingar urðu að daglegri rútínu í hennar lífi.

Nánar á BBC

Myndskeið frá O'Neill

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson