Hvar eru giftingarhringarnir?

Beyoncé Knowles og eiginmaður hennar Jay-Z.
Beyoncé Knowles og eiginmaður hennar Jay-Z. AFP

Beyoncé setti allt á hliðina þegar hún sendi frá sér nýju plötuna, Lemonade, á dögunum. Eins og alþjóð líklega veit þykja textar plötunnar bera vitni um erfiðleika í sambandi söngkonunnar og eiginmanns hennar, Jay Z.

Margir telja að á plötunni megi finna skýrar vísanir í framhjáhald Jay Z og hefur mikið verið rætt um Becky með fallega hárið, sem bregður fyrir í texta við eitt lagið.

Plötunni lýkur þó á ljúfu nótunum og virðist allt hafa fallið í ljúfa löð hjá hjónunum, sem eiga saman fjögurra ára dótturina Blue Ivy.

Frétt mbl.is: Tileinkaði Jay Z síðasta lagið

Nú er tónleikaferðalag söngkonunnar hafið og hjónin sífellt undir vökulu auga ljósmyndara. Það vakti því gríðarlega athygli þegar myndir náðust af skötuhjúunum baksviðs, en hvorugt þeirra bar giftingarhring.

Frétt Daily Mail

Jay Z var myndaður baksviðs, en virtist ekki bera giftingarhring …
Jay Z var myndaður baksviðs, en virtist ekki bera giftingarhring sinn. Skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson