Bieber snýr aftur á Instagram

Justin Bieber er kominn aftur á Instagram.
Justin Bieber er kominn aftur á Instagram. AFP

Ungstirnið Justin Bieber olli miklu fjaðrafoki á dögunum þegar hann lokaði Instagram-reikningi sínum. Söngvarinn lokaði reikningnum svo sem ekki fyrirvaralaust, því hann hafði varað aðdáendur sína við.

Forsaga málsins er sú að Bieber hefur undanfarið verið að slá sér upp með Sofiu Richie, við lítinn fögnuð kvenkyns aðdáenda hans. Í raun fékk hann yfir sig fúkyrðaflauminn á samfélagsmiðlum, þar sem æstir aðdáendur létu móðan mása um Richie. Í kjölfarið biðlaði söngvarinn til aðdáenda sinna og bað þá að haga sér, ellegar myndi hann loka reikningi sínum á Instagram.

Aðdáendurnir létu sér fátt um finnast og héldu áfram að hamast, sem síðan varð til þess að söngvarinn lokaði Instagram-reikningi sínum.

Frétt mbl.is: Biber lokar Instagram-reikningi sínum

Frétt mbl.is: Selena Gomez lætur Bieber heyra það

Söngvarinn hélt þó ekki út nema í tæpar tvær vikur, því síðan er komin aftur í loftið. 77,8 milljónum aðdáenda hans eflaust til mikillar gleði.

Mörgum hugnaðist ekki að Bieber væri að hitta Richie.
Mörgum hugnaðist ekki að Bieber væri að hitta Richie. Instagram/Sofia Richie
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson