„Hef aldrei kysst annan mann“

Céline Dion og eiginmaður hennar, René Angélil, voru gift í …
Céline Dion og eiginmaður hennar, René Angélil, voru gift í 21 ár. AFP

Söngkonan Céline Dion segir að hún sé enn yfir sig ástfangin af eiginmanni sínum, René Angélil, sem lést í byrjun árs enda sé hann eini maðurinn sem hún hefur kysst.

„Ég elska hann. Ég er enn ástfangin af honum,“ lýsti söngkonan yfir og bætti því við að hún væri ekki reiðubúin að verða ástfangin af öðrum manni.

„Ekki núna, ég er enn gift honum. Ég hef aldrei kysst annan mann á ævinni.“

Líkt og fram kemur í frétt Mirror þvertekur Dion þó fyrir að líf hennar sé snautt af ást, enda eigi hún þrjá syni og urmul aðdáenda.

„Ég elska. Ég elska hann. Ég er enn ástfangin af honum, og ég hef ást barnanna minna. Ég hef ást aðdáenda minna. Ég elska fólkið sem ég vinn með, þannig að líf mitt er ekki snautt af ást.“

Söngkonan hitti Angélil þegar hún var 12 ára, en hann var umboðsmaður hennar. Nokkrum árum síðar, þegar Dion var enn táningur, hófu þau samband. Þau gengu síðan í hjónaband árið 1994 og áttu saman þrjá syni.

Frétt mbl.is: Leyndi sambandinu fyrstu árin

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav