Leyndi sambandinu fyrstu árin

Céline Dion og René Angélil fóru leynt með samband sitt …
Céline Dion og René Angélil fóru leynt með samband sitt fyrst um sinn. AFP

Söngkonan Céline Dion missti eiginmann sinn, René Angélil, fyrir skemmstu en hann hafði háð langa og stranga baráttu við krabbamein.

Angélil var bæði umboðsmaður og lærifaðir söngkonunnar, en þau höfðu þekkst frá því Dion hóf feril sinn á unga aldri.

 „Ég kynntist René þegar ég var 12 ára,“ segir Dion í samtali við tímaritið People.

„Ég skrifaði ekki lögin mín. Ég kunni ekki einu sinni að lesa nótur eða spila á hljóðfæri. En ég var með frábæran umboðsmann sem umkringdi mig besta fólkinu,“ bætti Dion við og átti við eiginmanninn.

Nokkrum árum síðar, þegar Dion var enn táningur, hófu hún og Angélil ástarsamband.

„Við héldum þessu út af fyrir okkur sökum ferilsins míns,“ viðurkenndi söngkonan, en 26 ára aldursmunur var á hjónunum.

„Ég upplifði ástina í laumi. Þegar ég síðan komst á þann aldur að geta sagt fólki frá þessu varð sprenging. Ástin sigrar alltaf.“

Dion og Angélil gengu í hjónaband árið 1994 og áttu saman þrjá syni.  

Frétt mbl.is: Missti ástina 48 ára og lifir af

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál