Undanfarið hafa fjölmiðlar velt því fyrir sér hvort tónlistarfólkið Jennifer Lopez og Drake séu farin að stinga saman nefjum. Skötuhjúin hófu samstarf fyrir stuttu, sem síðan þróaðist í samband þeirra á milli. Rihanna, fyrrverandi ástkona Drake, er sögð ósátt með gang mála.
Frétt mbl.is: Er Jennifer Lopez búin að finna ástina?
Nú virðast Drake og Lopez hafa staðfest orðróminn, ef marka má ljósmynd sem birtist á Instagram-reikningum þeirra beggja. Á myndinni sést parið liggja í innilegum faðmlögum.
Fyrrverandi ástkona Drake er síður en svo ánægð með gang mála, en samkvæmt frétt Daily Mail er hún hætt að fylgjast með Lopez á samfélagsmiðlum. Hún er þá líklega blessunarlega laus við að sjá sinn fyrrverandi í faðmlögum með Lopez.
A photo posted by champagnepapi (@champagnepapi) on Dec 27, 2016 at 11:38pm PST