Of stór skammtur líklegasta dánarorsökin

Fadi Fawaz og George Michael á góðri stundu.
Fadi Fawaz og George Michael á góðri stundu. Instagram / Fadi Fawaz

Lögreglan heldur áfram að rannsaka dauða George Michael og samkvæmt heimildum Daily Mail er of stór skammtur talinn líklegasta orsökin eftir að krufning útilokaði hjartastopp eins og fyrstu fregnir hermdu.

Yfirheyrður í tvígang

Kærasti Michael, Fadi Fawaz, hefur verið yfirheyrður í tvígang til að reyna að púsla saman síðustu dögunum í lífi söngvarans. Þykir frásögn Fawaz að mörgu leyti einkennileg og ákveðin atriði sem ekki koma heim og saman. Fawaz liggur þó ekki undir grun en ljóst þykir að samband þeirra var ekki jafnslétt og -fellt og Fawaz hefur gefið til kynna.

Jafnframt hefur fjölskylda Michael slitið samskiptum við Fawaz eftir að hann birti upptöku af óútgefnu lagi eftir Michael og tísti um að hann hefði oft reynt að fyrirfara sér. Þeim tístum var þó eytt og Fawaz hélt því fram að brotist hefði verið inn á Twitter-reikning hans.

Sjá frétt mbl.is: Segir George Michael hafa viljað deyja.

Svaf í bílnum

Athygli vekur að Fawaz svaf í bílnum fyrir utan heimili Michael nóttina sem hann lést. Hann segist hafa sofnað þar en sú skýring þykir einkennileg. Því er jafnframt haldið fram að parið hafi búið hvor í sínu húsinu og að sambandi þeirra hafi verið lokið. Eins er talað um að Fawaz sé ekki í erfðaskrá Michael sem rennir stoðum undir þá kenningu að samband þeirra hafi í reynd runnið sitt skeið á enda 18 mánuðum fyrr.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Gamall vinur gefur þér góð ráð í dag. Dragðu djúpt andann og veltu því fyrir þér, hvaða breytingar þú vilt gera.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir