Lohan biðlaði til Disney

Það er svipur með Lohan og teiknimyndapersónunni Ariel.
Það er svipur með Lohan og teiknimyndapersónunni Ariel. Skjáskot / Instagram

Lindsay Lohan hefur lýst yfir áhuga á að fara með hlutverk Ariel í leikinni kvikmynd um litlu hafmeyjuna sem væntanleg er á næstunni.

Eins og fram kemur í frétt Daily Mail birti leikkonan færslu á Instagram þar sem hún stakk upp á því að yngri systir hennar, Ali Lohan, myndi syngja titillag myndarinnar og að Bill Condon myndi leikstýra herlegheitunum.

Færslunni hefur hins vegar verið breytt og má núna einungis sjá orðin „litla hafmeyjan“ við hana.

#thelittlemermaid

A post shared by Lindsay Lohan (@lindsaylohan) on Feb 19, 2017 at 3:24am PST

Lohan hefur mikið verið á milli tannanna á fólki undanfarið, en margir veltu því fyrir sér hvort hún hefði tekið upp íslamstrú. Þá hafði leikkonan bæði verið að kynna sér Kóraninn auk þess sem hún var tekin upp á því að hylja hár sitt.

Frétt mbl.is: Lohan huldi hár sitt

Sjálf segir Lohan þó að hún hafi ekki tekið upp trúna, þrátt fyrir að hafa kynnt sér hana.

„Það er ferli að skipta um hvaða trú sem er. Ég virði öll trúarbrögð en ég hef skoðað íslamstrú upp á síðkastið,“ greindi Lohan frá á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson