Dion sterkari eftir lát eiginmannsins

Söngkonan stillti sér upp á Grammy-verðlaununum sem fram fóru á …
Söngkonan stillti sér upp á Grammy-verðlaununum sem fram fóru á dögunum. AFP

„Ég og eiginmaður minn skiptum öllu jafnt á milli okkar. Þegar hann lést fyllti hann hjörtu mín og barnanna, svo við gætum verið fullkomnuð. Svo ég gæti haldið lífi mínu áfram, svo ég gæti verið sterk og trúað því að ég gæti haldið áfram,“ sagði Céline Dion í viðtali við ET.

„Hann mun alltaf vera með mér,“ sagði söngkonan um eiginmann sinn, René Angélil, sem lést á síðasta ári eftir langa og stranga baráttu við krabbamein.

Söngkonan segir að árið sem liðið er frá láti eiginmannsins hafi verið ákaflega erfitt, en henni finnist hún þó sterkari en nokkru sinni fyrr.

„Hann gaf mér restina af sjálfum sér, og mér finnst ég sterkari. Ég stíg fram, ég segi það sem ég meina og meina það sem ég segi. Ég er til staðar fyrir börnin mín, ég er leiðtogi fjölskyldunnar.“

Söngkonan hefur margoft lýst því yfir að Angélil hafi verið stóra ástin í lífi hennar, og í fyrra greindi hún frá því að hún hefði aldrei kysst annan mann. 

Frétt mbl.is: „Hef aldrei kysst annan mann“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson