Risapandann Basi er fallin frá 37 ára að aldri. Um er að ræða elstu dýragarðspöndu í heimi en Basi átti heima í dýragarði í Suðaustur-Kína.
Basi varð töluvert eldri en venjulegar pöndur í dýragarði og lifði hún um 20 árum lengur en meðalpanda. Í mannsárum varð Basi yfir 100 ára.