(Næstum) saman í opinberri heimsókn

Glatt var á hjalla, eins og sjá má.
Glatt var á hjalla, eins og sjá má. AFP

Skötuhjúin Harry Bretaprins og leikkonan Meghan Markle hafa farið fremur leynt með samband sitt, en þau hafa að mestu haldið því utan við sviðsljósið. Um helgina mættu þau þó (næstum) saman á opinberan viðburð, en bæði voru þau viðstödd opnunarhátíð Invictus-leikanna sem fram fór í Toronto á laugardaginn.

Parið sat þó ekki saman, því Harry sat í viðhafnarstúku ásamt fleiri fyrirmönnum svo sem Melaniu Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, og forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau.

Parið virðist engu að síður hafa skemmt sér konunglega, eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmyndum en Markle fylgdist grannt með þegar kærasti hennar hélt ræðu á setningarhátíðinni.

Melania Trump sat við hlið Harrys. Forseti Úkraínu og eiginkona …
Melania Trump sat við hlið Harrys. Forseti Úkraínu og eiginkona hans voru einnig á svæðinu, sem og Justin Trudeau og eiginkona hans. AFP
Harry Bretaprins hélt stutta tölu á opnunarhátíðinni.
Harry Bretaprins hélt stutta tölu á opnunarhátíðinni. AFP
Skötuhjúin létu það ekki á sig fá þótt gætu ekki …
Skötuhjúin létu það ekki á sig fá þótt gætu ekki setið saman á opnunarhátíðinni. AFP
Meghan Markle fylgdist grannt með úr áhorfendaskaranum og virtist skemmta …
Meghan Markle fylgdist grannt með úr áhorfendaskaranum og virtist skemmta sér konunglega. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson