Keypti 638 milljóna króna lúxusvillu fyrir spúsuna

Fótboltakappinn Wayne Rooney og eiginkona hans Coleen hafa ekki átt …
Fótboltakappinn Wayne Rooney og eiginkona hans Coleen hafa ekki átt sjö dagana sæla undanfarið. Skjáskot Instagram / Coleen Roney

Wayne Rooney hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarið, en hann var á dögunum handtekinn fyrir ölvunarakstur. Með honum í för var ung kona, sem greindi síðan frá því að fótboltakappinn hefði gert sér dælt við hana.

Coleen Rooney, eiginkona fótboltakappans, er orðin langþreytt á framferði eiginmannsins og vilja margir meina að samband þeirra sé ákaflega stormasamt.

Frétt mbl.is: Búið spil hjá Rooney-hjónunum?

Samkvæmt frétt Mirror hefur fótboltakappinn nú tekið upp á því að kaupa fokdýra lúxusvillu í Portúgal til að koma sér aftur í mjúkinn hjá eiginkonu sinni. Húsið kostaði litlar fimm milljónir evra, eða rúmar 638 milljónir króna.

„Wayne grátbiður hana daglega um að gefa sér annað tækifæri og hefur keypt nýtt heimili fyrir fjölskylduna í Portúgal. Coleen er þó ekki reiðubúin að ræða framtíðina eins og er,“ segir ónefndur heimildamaður.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson