Stundaði mikið kynlíf

Jennifer Lawrence tók sér hlé frá sviðsljósinu og nýtti tímann …
Jennifer Lawrence tók sér hlé frá sviðsljósinu og nýtti tímann vel. AFP

Leikkonan Jennifer Lawrence steig aftur í sviðsljósið á dögunum eftir að hafa tekið sér þriggja ára hlé frá sviðsljósinu. Leikkonan, sem er kasólétt, mætti í spjallþátt Stephens Colberts sem spurði hana hvað hún hefði eiginlega verið að gera síðustu árin. 

„Ég stundaði bara mikið kynlíf,“ sagði Lawrence hlæjandi og leit niður á óléttukúluna sína. „Ég er að grínast. Ég eldaði svolítið. Svo kom heimsfaraldurinn og svo eldaði ég og tók mikið til.“

Colbert spurði leikkonuna hvað hún gerði ef hún væri ekki leikkona og sagðist Lawrence líklega myndu vinna við heimilisþrif. Henni finnst gaman að þrífa bæði eldhús og baðherbergi. Hún hlustar á hlaðvarp um morð þegar hún þrífur og skipuleggur sig vel. 



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú gerir þér grein fyrir að þú hefur ekki sagt allan sannleikann í spjalli við fólk. Farðu þér því hægt í málefnum hjartans og leyfðu huganum að vera með í spilinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson