25 ára fyrirsæta í dái eftir lýtaaðgerð

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Ljósmynd/Farhad Irani

Rússneska fyrirsætan og áhrifavaldurinn, Vlada Antropova, var flutt í skyndi á gjörgæslu þar sem hún berst nú fyrir lífi sínu eftir að hafa gengist undir lýtaaðgerð á nefi. 

Fyrirsætan innritaði sig á einkarekna læknamiðstöð rétt fyrir utan Moskvu til að gangast undir lýtaaðgerð á nefi. Skömmu eftir aðgerðina missti Antropova meðvitund og var flutt með hraði á gjörgæslu, en hún er nú í öndunarvél á Burdenko-sjúkrahúsinu í Moskvu.

„Stærsta áskorunin er að skipta um nefbrúnina þegar beinvefurinn er skorinn. Blæðingar og jafnvel skemmdir á höfuðkúpubotni geta átt sér stað, sem getur leitt til dauða,“ sagði lýtalæknirinn Igor Korotkoy í samtali við Daily Mail

Fjölskylda fyrirsætunnar bíður nú örvæntingafull og vonast til að Antropova komist til meðvitundar, en þau segja að í fyrstu hafi aðgerðin virst heppnast vel. Hins vegar hafi ástand hennar byrjað að versna verulega sem endaði með því að hún missti meðvitund og féll í dá. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er mikil hætta á einhvers konar valdabaráttu í dag. Vertu því jákvæður gagnvart mönnum og málefnum og hugsaðu vel þinn gang.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lotta Luxenburg
3
Sofie Sarenbrant
4
Lucinda Riely og Lucinda Riley
5
Eppu Nuotio
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er mikil hætta á einhvers konar valdabaráttu í dag. Vertu því jákvæður gagnvart mönnum og málefnum og hugsaðu vel þinn gang.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Steindór Ívarsson
2
Lotta Luxenburg
3
Sofie Sarenbrant
4
Lucinda Riely og Lucinda Riley
5
Eppu Nuotio