Leikarinn Tom Cruise er ennþá í topp formi. Um þessar mundir eru 38 ár síðan hann skaust upp á stjörnuhimininn fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Top Gun. Cruise sem er í dag 61 árs sannaði fyrir aðdáendum sínum að hann hefur sjaldan verið betri á sig kominn þegar hann sólaði sig á ströndum Majorca á dögunum.
Mörg eflaust muna eftir hugrakka flugmanninum sem elskaði að hlaupa á ströndinni ber að ofan en Cruise heldur sér í formi með metnaðarfullu líkamsræktarplani.
Kappinn hreyfir sig fimm daga vikunnar. Æfingarnar eru fjölbreyttar en hann lyftir lóðum þrisvar í viku í bland við þolæfingar. Hina tvo dagana labbar hann á fjöll eða fer á skylmingaæfingu.