„Fimm loftsteinar eru ekki tilviljun"

Bosnískur maður telur að hann sé skotmark geimvera. Heimili hans hefur fimm sinnum orðið fyrir loftsteinum. Sérfræðingar í háskólanum í Belgrad hafa staðfest að grjótið sem Radiovje Lajic færði þeim til athugunar er utan úr geimnum.

Þeir rannsaka nú samkvæmt frétt á Ananova fréttavefnum hvort rafsegulsviðið í kringum hús Lajic sé svo sterkt að það dragi til sín grjót úr geimnum.

Húsið er í þorpinu Gornja Lamovite í norðurhluta landsins. „Það er nokkuð ljóst að ég er skotmark geimvera. Ég veit ekki hvað ég hef gert til að pirra þær en það er engin önnur útskýring sem kemur til greina. Líkurnar á að verða fyrir loftsteini eru svo litlar að þegar það gerist fimm sinnum hlýtur það að vera af ásettu ráði," sagði Lajic.

Fyrsti loftsteinninn féll á hús hans í nóvember á síðasta ári og síðan þá hafa fjórir til viðbótar lent á húsinu. Grjótið fellur einungis í regnveðri, aldrei þegar heiðskírt er.

Lajic sagðist eiga erfitt með svefn og vera viss um að geimverurnar væru að leika sér að honum.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er sannleikskorn í því að hálfnað er verk þá hafið er. Þú kemur miklu í verk í dag og nýtur góðs af styrk annarra.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir