Um tuttugu lögregluþjónar sem sinna umferðareftirliti í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, eru búnir að leggja bifreiðum og hjólum og hafa tekið upp línuskauta í staðinn við vinnu. Segja þeir að þetta sé mjög þægilegt þar sem umferðin um borgina sé gífurleg og oft sé þannig að þeir einu sem hreyfast í umferðinni eru lögregluþjónarnir á skautunum.