Japanskur maður var handtekinn í Tókýo nýlega fyrir að hafa 51 hættulegan snák og eiturslöngur á heimili sínu án tilskilinna leyfa. Upp komst um Nobukazu Kashiwagi, 41 árs hafnarstarfsmann, eftir að hann var bitinn af grænni afrískri eiturslöngu og þurfti að kalla á sjúkrabíl.
Í safni Kashiwagi var m.a tveggja metra löng svört afrísk eiturslanga, sem er ein af eitruðustu slöngum í heimi. Kashiwagi missti meðvitund fljótlega eftir bitið en var bjargað á sjúkrahúsi. Hann var handtekinn skömmu síðar á heimili sínu.