Dularfullir hringir á ökrum í Sacramento

AP

Hópar áhugamanna um fljúgandi furðuhluti og aðra dularfulla viðburði hafa að undanförnu flykkst til Sacramentodals í Bandaríkjunum þar sem tugir óútskýrðra hringja birtust á hveitiakri fyrir hálfum mánuði. Slíkir hringir birtast stundum á ökrum víða um heim og hafa ýmsir talið að þeir séu verk gesta utan úr geimnum, aðrir telja að hringirnir séu af völdum veðurfyrirbrigða, svo sem lítilla skýstrokka og enn aðrir segja að hringirnir séu einfaldlega gerðir af mönnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert