Fjórir talibanar létust í átökum við lögreglu

Frá Afganistan
Frá Afganistan Reuters

Fjórir talibanar létust í átökum milli skæruliða og lögreglu í Helmand héraði í Afganistan í morgun. Einn lögreglumannanna særðist í bardaganum sem stóð yfir í þrjár klukkustundir í áhlaupi skæruliða á bílalest lögreglu. Lögregla gerði riffla, vélbyssur og bifreið upptæka þegar skæruliðarnir flúðu af hólmi, samkvæmt upplýsingum frá héraðsstjórninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert