Nasrallah: Hefði ekki fyrirskipað handtöku hermannanna hefði hann vitað af afleiðingunum

Nasrallah flytur sjónvarpsávarp á meðan á átökum stóð.
Nasrallah flytur sjónvarpsávarp á meðan á átökum stóð. AP

Hassan Nasrallah, leiðtogi Hizbollah-samtakanna, sagði í dag að hefði hann vitað að það að taka tvo hermenn Ísraela til fanga myndi leiða til stríðs, hefði hann ekki skipað fyrir um handtökuna. Ísraelar hófu árásir á meinta dvalarstaði herskárra Hizbollah-liða í kjölfar þess að Hizbollah-liðar tóku tvo ísraelska hermenn til fanga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert