Hitamet slegið í Suður-Noregi

Hitabylgja gengur nú yfir Suður-Noreg.
Hitabylgja gengur nú yfir Suður-Noreg. mbl.is/Jim Smart

Hitabylgja gengur nú yfir Suður-Noreg og hefur farið í 30,3 gráður, en hitinn hefur ekki náð slíkum hæðum í byrjun júní síðan seint á nítjándu öld. Heimildir eru fyrir því að 1887 hafi hitinn mælst 31 gráður í júní en samkvæmt norsku veðurstofunni sem hefur skráð hitastig síðan á fjórða áratugnum er þetta met.

Veðurstofan segir í samtali við norska Dagbladet að hitinn muni haldast yfir helgina en hugsanlega lækka um gráðu eða tvær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert