Kínverjar gagnrýna fjölmiðla fyrir sleggjudóma í matvælamálinu

Kínverjar velja kjöt í stórmarkaði í Wuhan, héraðshöfuðborg Hubei-héraðs.
Kínverjar velja kjöt í stórmarkaði í Wuhan, héraðshöfuðborg Hubei-héraðs. Reuters

Yfirvöld í Kína hafa látið loka þremur matvæla- og lyfjafyrirtækjum í landinu og handtaka nokkra af forsvarsmönnum þeirra en hneykslismál tengd fyrirtækjunum hafa að undanförnu grafið mjög undan trausti á kínverskum vörum bæði innanlands og á alþjóðavettvangi. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

Tvö fyrirtækjanna fluttu mengað hveitiprótín til Bandaríkjanna þar sem það var notað í dýrafóður sem dró bæði hunda og ketti til dauða. Vörur frá þriðja fyrirtækinu eru taldar tengist dauða nokkurra einstaklinga á Panama.

Kínverski ráðherrann Li Changjiang, sem er yfir öryggismálum í matvæla- og lyfjaframleiðslu í landinu, hefur heitið því að eftirlit með allri slíkri framleiðslu í landinu verði hert. Changjiang segir rannsókn kínverskra yfirvalda haf leitt í ljós að forsvarsmenn fyrirtækjanna þriggja hafi vísvitandi smyglað gallaðri vöru til innflutningslandanna en að samsvarandi sakir, sem voru bornar á tvö önnur fyrirtæki, hafi hins vegar reynst ósannar.

Þá gagnrýndi hann erlenda fjölmiðla fyrir að fella dóma í málum fyrirtækjanna áður en niðurstöður rannsóknar á málefnum þeirra lágu fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert