Handtökutilskipun gefin út á hendur Thaksin Shinawatra

Hæstiréttur Taílands hefur gefið út handtökutilskipun á hendur Thaksin Shinawatra vegna spillingar. Thaksin er fyrrum forsætisráðherra landsins sem var hrakinn frá völdum.

Dómstóllinn gaf út tilskipunina eftir að Thaksin og eiginkona hans mættu ekki fyrir dómstóla í Bangkok, höfuðborg Taílands. Þar átti dómari að hlýða á fyrstu ákæruatriðin í spillingarmálinu.

Thaksins, sem nýverið keypti Manchester City knattspyrnuliðið á Englandi, var hrakinn frá völdum í fyrra þegar herinn reis upp gegn honum.

Thaksin Shinawatra er fyrrum forsætisráðherra Taílands og núverandi eigandi Manchester …
Thaksin Shinawatra er fyrrum forsætisráðherra Taílands og núverandi eigandi Manchester City knattspyrnufélagsins, sem leikur í ensku úrvalsdeildinni. AP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert