Lögregla segir blóð úr Madeleine hafa fundist í fjölskyldubílnum

Kate McCann kemur til lögreglustöðvar í Portimao í Portúgal í …
Kate McCann kemur til lögreglustöðvar í Portimao í Portúgal í morgun. AP

Lögregla í Portúgal hefur sagt Kate McCann, að blóðleifar úr Madeleine dóttur Kate hafi fundist í bíl, sem fjölskyldan leigði í Portúgal þremur vikum eftir að Madeleine hvarf í Portúgal í byrjun maí. Sjónvarpsstöðin Sky skýrir frá þessu í dag.

Kate McCann var yfirheyrð í 11 klukkustundir í Portúgal í gær og kom í morgun aftur á lögreglustöð þar sem tilkynna átti henni formlega, að hún hefði nú réttarstöðu grunaðs manns í málinu.

Sky hefur eftir vini Kate McCann, að lögregla hafi spurt hana um blóðleifarnar í gær. Hún hefði sagt lögreglunni, að ómögulegt væri að blóð úr litlu stúlkunni hefði fundist í bílnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert