Ólafur Ragnar Grímsson fundaði með forseta Kína

Ólafur Ragnar Grímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson. mbl.is/Ómar

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, átti í dag, þriðjudaginn 2. október, fund með Hu Jintao forseta Kína. Fundurinn fór fram í gestabústað forsetans í Shanghai og sátu hann jafnframt háttsettir ráðherrar og embættismenn frá Kína ásamt sendiherra Íslands í Kína, Gunnari Snorra Gunnarssyni, Örnólfi Thorssyni forsetaritara og Magnúsi Bjarnasyni formanni Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins.

Í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu segir að forseti Kína hafi fagnað þeim mikla árangri sem orðið hefði í samvinnu landanna frá því forseti Íslands kom í opinbera heimsókn til Kína fyrir tveimur árum. Kínverjar teldu samvinnu við Ísland vera fyrirmynd í alþjóðlegum samskiptum, um það hvernig Kínverjar myndu starfa með öðrum þjóðum á nýrri öld.

Jafnframt lýsti hann yfir eindregnum og ótvíræðum stuðningi við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Á fundinum rakti forseti Kína fjölmörg dæmi um árangursríka samvinnu við Íslendinga á sviði viðskipta, tækni, vísinda, menningar og mennta. Jafnframt lýsti hann yfir eindregnum og ótvíræðum stuðningi við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Forsetarnir ræddu m.a. hitaveituframkvæmdir í borginni Xian Yang sem Orkuveita Reykjavíkur og Glitnir standa að ásamt kínverska orkufyrirtækinu Sinopec, og möguleika á stóraukinni samvinnu Íslendinga og Kínverja í byggingu hitaveitna.

Einnig var rík áhersla lögð á samvinnu á sviði vísinda og tækni og óskaði Kínaforseti sérstaklega eftir samvinnu við Íslendinga í þróun viðvörunarkerfis vegna jarðskjálftavarna og á sviðum eldfjallarannsókna og jöklafræða.

Forseti Kína hvatti íslensk fyrirtæki til að láta að sér kveða í Kína og bauð þau sérstaklega velkomin. Hann nefndi í þessu sambandi m.a. lyfjaframleiðslu, flutningastarfsemi, matvælaframleiðslu, líftækni, byggingaiðnað og hugbúnað auk fleiri greina.

Einnig var rík áhersla lögð á samvinnu á sviði vísinda og tækni og óskaði Kínaforseti sérstaklega eftir samvinnu við Íslendinga í þróun viðvörunarkerfis vegna jarðskjálftavarna og á sviðum eldfjallarannsókna og jöklafræða.

Forseti Íslands lýsti niðurstöðum alþjóðlegrar ráðstefnu um landgræðslu sem nýlega var haldin á Íslandi í tilefni af 100 ára afmæli Landgræðslu ríkisins og hvernig sú þekking sem aflað hefði verið í baráttunni við uppblástur og sanda á Íslandi gæti nýst í baráttunni við eyðimerkurnar í Kína. Lýsti forseti Kína miklum áhuga á slíku samstarfi.

Forsetarnir ræddu einnig ítarlega um Heimsleika Special Olympics sem settir verða í Shanghai í kvöld. Þátttakendur frá 165 þjóðum sækja leikana og eru þeir stærsta íþróttahátíð heims á þessu ári. Kínverjar hafa búið leikunum glæsilega umgjörð og ætla þeim að verða stórt skref á alþjóðavettvangi til að styrkja hagsmuni og velferð seinfærra og þroskaheftra einstaklinga. Fjölmargir Íslendingar taka þátt í leikunum og er þátttaka þeirra skipulögð af Íþróttasambandi fatlaðra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert