Hera Björk og Kidman með sama stílinn

Hera Björk Þórhallsdóttir og Nicole Kidman klæddust báðar gulllituðu.
Hera Björk Þórhallsdóttir og Nicole Kidman klæddust báðar gulllituðu. Ljósmynd/EBU/AFP

Gyllt glamúrdress voru aðalmálið um helgina. Stórstjörnurnar Hera Björk Þórhallsdóttir og Nicole Kidman eiga það sameiginlegt að hafa klæðst gylltum fötum um helgina.

Óskarsverðlaunaleikkonan Nicole Kidman mætti á verðlaunaafhending í Los Angeles á laugardaginn. Hún tók við viðurkenningunni í gylltum sérsaumuðum síðkjól frá hátískumerkinu Balanciaga. 

Nicole Kidman í kjólnum fallega.
Nicole Kidman í kjólnum fallega. AFP/Valerie Macon

Um helgina var Hera Björk Þórhallsdóttir og íslenski Eurovison-hópurinn á leiðinni til Malmö. Á laugardaginn klæddist hópurinn meðal annars gylltum úlpum á leiðinni út á flugvöll. Þegar Hera Björk æfði í fyrsta sinn á sviðinu á sunnudag var hún í gylltum samfestingi. 

Þó svo að Hera Björk hafi klæðst samfestingi en Kidman kjól má segja að þær hafi minnt á hvor aðra um helgina. Fer liturinn þeim báðum afskaplega vel. 

Hera Björk Þórhallsdóttir í gylltu.
Hera Björk Þórhallsdóttir í gylltu. Ljósmynd/EBU/Sarah Louise Bennett



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál