Putin segist standa með Íran í kjarnorkudeilunni

Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad ásamt Vladimir Putin forseta Rússlands í …
Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad ásamt Vladimir Putin forseta Rússlands í dag. Reuters

Vladimir Putin, forseti Rússlands sagði að Rússland myndi veita Írönum aðstoð í deilu þeirra við vesturlönd um kjarnorkuáætlun landsins. Putin er nú staddur í fyrstu heimsókn rússnesks leiðtoga til Íran síðan Stalín sótti landið heim í lok seinni heimstyrjaldarinnar. Putin sagði að friðsamleg „kjarnorkustarfsemi” ætti rétt á sér og varaði vesturlönd gegn því að beita afli til að leysa þessa deilu.

Á fréttavef BBC kemur fram að Putin færðist undan því að svara nákvæmum spurningum um það hvort Rússland myndi sjá Íran fyrir kjarnorkueldsneyti fyrir Bushehr kjarnorkuverið sem verið er að reisa í Íran með rússneskri aðstoð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert