Drukkinn og berfættur Frakki hringdi kirkjubjöllum í Páfagarði

Frá Páfagarði
Frá Páfagarði ap

Drukkinn, berfættur Frakki hringdi snemma í morgun kirkjubjöllum St. Péturskirkjunnar í Páfagarði. Maðurinn, sem talinn er heimilislaus, klifraði upp vinnupalla sem voru við kirkjuna vegna viðgerða og hringdi bjöllunum án þess að öryggisverðir gætu nokkuð að gert. Maðurinn, sem sagður var í annarlegu ásigkomulagi, var svo handtekinn og er nú í haldi ítölsku lögreglunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert