Al-Qaeda á bakvið árásirnar

Al-Qaeda hefur lýst tilræðunum á hendur sér.
Al-Qaeda hefur lýst tilræðunum á hendur sér. Reuters

Norður-Afríkudeild al-Qaida hryðjuverkasamtakanna tilkynntu á netinu á vefsíðu islamista fyrir skömmu að hún bæri ábyrgð á sprengjutilræðunum í Algeirsborg í dag. Í skilaboðunum sögðust samtökin hafa drepið 110 manns í tilræðunum.

Fram kom að tilræðin voru voru framin með tveimur sjálfsvígsmönnum á vörubílum hlöðnum 800 kílóum af sprengiefnum hvor.

Í tilkynningunni kemur fram að tveir „píslarvottar” al-Qaeda í hinni íslömsku Norður-Afríku hafi ráðist til atlögu við „höfuðstöðvar og greni alþjóðlegra villutrúarmanna og höfuðstöðvum alsírska stjórnarskrárráði.”
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert