Lík Bhutto flutt til Larkana

Lík Benazir Bhutto, fyrrverandi leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Pakistan, hefur verið flutt af sjúkrahúsi og í flugvél sem mun flytja líkið til heimabæjar hennar, Larkana.

Mikill glundroði ríkti þegar verið var að flytja kistuna út úr sjúkrahúsinu. Kistan, sem er úr tré, er með gler- eða plastloki. Fólk gat því séð líkið sem var hulið hvítum klæði.

Bhutto var ráðin af dögum á kosningafundi í Rawalpindi í dag. Mikil reiði ríkir í landinu og hefur lögregla í nokkrum borgum þurft að beita táragasi til að dreifa mannfjölda.

Þjóðarleiðtogar um allan heim hafa fordæmt verknaðinn. Enginn hefur enn lýst ábyrgð á ódæðinu. 

Hundruð syrgjenda hafa komið saman fyrir framan heimili fjölskyldu Bhutto í Larkana, og fer þeim fjölgandi að sögn sjónarvotta. Búast má við því að mikið fjölmenni verði viðstatt er Bhutto verður lögð til hinstu hvílu.

Stuðningsmenn Bhutto sjást hér flytja kistu hennar.
Stuðningsmenn Bhutto sjást hér flytja kistu hennar. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert