Áróðursherferð gegn Obama í undirbúningi

Barack Obama á ársfundi bandaríska demókrataflokksins í Milwaukee í Wisconsin
Barack Obama á ársfundi bandaríska demókrataflokksins í Milwaukee í Wisconsin AP

Forystumenn bandarískra repúblíkana eru sagðir búa sig undir að heyja áróðurherferð gegn Barack Obama, verði hann forsetaefni bandarískra demókrata, þar sem  dregin verði upp mynd af honum sem öfgasinnuðum sósíalista með grunsamleg tengsl við vafasama fjárglæframenn í Chicago. Þetta kemur fram á fréttavef breska blaðsins Sunday Times.

Þá eru margir forystumenn Repúblikanaflokksins sagðir telja frambjóðanda flokksins eiga sigur vísan í forsetakosningunum verði Obama forsetaefni Demókrataflokksins. Haft er eftir áhrifamönnum innan flokksins að Obama verði þá mesti vinstrisinni í forsetaframboði frá því árið 1972 en þá bauð demókratinn George McGovern sig fram gegn Richard Nixon og beið mikinn ósigur.

„Barack Obama hefur tekist að skapa sína eigin ímynd og kynna sig fyrir kjósendum en þeir kjósendur sem flakka á milli flokka eru enn ekki farnir að fylgjast með,” segir áróðursmeistarinn Grover Norquist. „Hann býður upp á að verða skilgreindur sem vinstrisinnaður spilltur stjórnmálamaður frá Chicago.”  

Þegar hefur verið bent á viðskipti Obama við spillta kaupsýslumenn og fasteignabraskara í Chicago, þeirra á meðal Tony Rezko, sem á fangesisdóm yfir höfði sér fyrir að múta stjórnmálamönnum. Obama keypti heimili sitt í Chicago fyrir 1.65 milljónir Bandaríkjadollara sem var 300.000 dollurum undir því sem á húsið hafði verið sett.  

Sama dag keypti Rita, eiginkona Rezko húsið við hliðina á húsi hans fullu verði húsanna en seljandi húsanna hafði krafist þess að þau yrðu seld saman. Í framhaldi af kaupunum seldi Rita síðan Obama hluta af garðinum sem fylgdi með því húsi hennar. Hillary Rodham Clinton, helsti keppinautur Obama um útnefningu sem forsetaefni demókrata, gagnrýndi tengsl Obama við Rezko fyrir nokkru en hefur ekki minnst á þau síðan birt var mynd af henni og eiginmanni hennar Bill Clinton með Rezko. Einnig þykja tengsl Obama við William Ayers, prófessor við háskólann í Illinois, vafasöm en  Ayers er fyrrum liðsmaður vinstriöfgasamtakanna Weather Underground sem komu m.a. fyrir sprengjum í bandaríska þinghúsinu og bandaríska varnarmálaráðuneytinu á áttunda áratug síðustu aldar.

Næst verður kosið á milli Obama og Hillary Rodham Clinton í prófkjöri demókrata  eru í Wisconsiná þriðjudag en Obama hefur örlítið meira fylgi í ríkinu samkvæmt skoðanakönnunum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert