Vilja koma í veg fyrir ofbeldi gegn stúlkum í skólum

Skólastúlkur í Bagdad.

Skólastúlkur í Bagdad. AP

Í aðdraganda Alþjóðlegs baráttudags kvenna krefur Amnesty International ríkisstjórnir og skólayfirvöld um allan heim um að grípa til áhrifaríkra aðgerða til að enda ofbeldi gegn stúlkum, þá sérstaklega innan veggja kennslustofunnar.

 Í nýrri skýrslu Amnesty International kemur fram að ríkisstjórnir hafa brugðist stúlkum í grundvallaratriðum á borð við öryggi í skólum. Það er að mati samtakanna óásættanlegt að ekki sé brugðist við ofbeldi gegn stúlkum í skólum á áhrifaríkan og tafarlausan hátt.
 
„Samtökin benda á að nánast allar ríkisstjórnir heims hafa fordæmt ofbeldi gegn konum og stúlkum. Ríkisstjórnir bera beina ábyrgð á grunnskólastarfi og eru grunnskólar mikilvægur vettvangur fyrir yfirvöld að standa við orð sín og fylgja þeim eftir með beinum aðgerðum.
 
Skýrslan, sem ber heitið Öruggir skólar: réttur allra stúlkna (Safe Schools: Every Girl´s Right), sýnir fram á að ofbeldi innan skóla er alvarlegt samfélagsvandamál víðast hvar um heim. Stúlkur hvarvetna eiga það á hættu að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi, þær áreittar eða þeim hótað á leið sinni í skólann og innan veggja hans.
 
Sumar stúlkur eru í meiri áhættu að verða fórnalömb ofbeldis en aðrar. Stúlkur sem tilheyra þjóðernisminnihlutum, lesbíur og fatlaðar stúlkur eru sérlega í hættu á að vera beittar ofbeldi.
 
Í skólanum verða margar stúlkur fyrir andlegu ofbeldi, þær niðurlægðar og lagðar í einelti. Sumar stúlkur eru barðar í kennslustofunni undir því yfirskyni að halda uppi aga. Stúlkur eiga ennfremur á hættu að vera beittar kynferðislegu ofbeldi af hálfu annarra nemenda, þeim boðnar hærri einkunnir í skiptum fyrir kynlífsgreiða, eða þeim jafnvel nauðgað á kennarastofunni.
 
Rannsókn meðal skólastúlkna í Malaví frá árinu 2006 sýnir fram á að helmingur stúlknanna kvaðst hafa verið snert á kynferðislegan hátt í leyfisleysi af kennara eða samnemendum.
 
Ennfremur hefur rannsókn í Bandaríkjunum sýnt fram á að 83% stúlkna í ríkisreknum grunnskólum á aldursbilinu 12-16 ára hafa upplifað einhvers konar kynferðislega áreitni.
 
Árásir á stúlkur í skólum hafa bæði skyndileg og langvarandi áhrif.
 
Ofbeldið hefur ekki einungis áhrif á líkamlega og andlega heilsu stúlknanna heldur einnig áhrif á möguleika þeirra til að afla sér menntunar. Fórnarlömb ofbeldis eru líklegri til þess að hætta í skóla og gefa upp vonina um að losna úr vítahring fátæktar og áhrifaleysis.
 
Samtökin benda á aðgangur að góðri menntun er lykillinn að því að efla þátttöku kvenna á opinberum sviðum samfélagsins og styrkja konur til virkrar samfélagslegar þátttöku. Það hefur ævilöng áhrif á konur að vera neitað um menntun.
 
Árásargjarnir og óviðeigandi kynferðislegir tilburðir drengja í skólum hafa oft verið álitnir sem eðlileg drengjahegðun. Slík viðleitni sendir þau skilaboð að ofbeldi gegn konum og stúlkum sé ásættanlegt og að áreitni af hendi drengja sé eðlileg.
 
Í viðtölum á vegum Amnesty International við íbúa á Haíti kom fram að ofbeldi þekktist víða í skólum en væri sjaldan tilkynnt. Líkamlegar refsingar á borð við svipuhögg, barsmíðar með rafmagnssnúrum, matarskortur, kynferðislegt ofbeldi, móðganir, og andlegt ofbeldi voru algengar refsingar sem kennarar og aðrir starfsmenn skóla útdeildu.
 
Konur eiga sérlega á hættu að vera beittar ofbeldi í skólum á átakasvæðum. Skólastarf fer ennfremur alvarlega úr skorðum þar sem kennarar og nemendur eru skotmörk vopnaðs ofbeldis. Í Afganistan eru íkveikjur í skólum sífellt algengari, þá sérstaklega í stúlknaskólum, og eru ógnanir og árásir á kvenkyns nemendur æ algengari þar á síðustu árum.
 
Margir grunnskólar rukka enn skólagjöld, þrátt fyrir að alþjóðalög kveði á um að grunnskólamenntun hvarvetna í heiminum eigi að vera gjaldfrjáls. Skólagjöld og önnur tengd gjöld eru óyfirstíganleg hindrun fyrir margar fjölskyldur og eru stúlkur líklegri en strákar til þess að vera neitað um skólagöngu ef foreldrar hafa ekki efnahagslega burði til að senda öll börn sín í skóla.
 
Amnesty International hefur birt sex liða áætlun handa yfirvöldum og yfirmönnum skólastofnanna, sem í birtast  eftirfarandi tillögur:
Að koma á og fylgja eftir viðeigandi lögum, stefnum og aðgerðum sem banna allar tegundir ofbeldis gegn konum, þar með taldar líkamlegar refsingar, munnlegar svívirðingar, áreitni, líkamlegt og andlegt ofbeldi, kynferðislegt ofbeldi og misnotkun.
 
Að koma á fót aðgerðaáætlunum í hverju landi til þess að tryggja öruggt umhverfi fyrir stúlkur. Þar ætti að vera innifaldar leiðbeiningar fyrir skóla og lögbundna þjálfun fyrir kennara og nemendur.
 
Kennarar, skólayfirvöld og aðrir opinberir starfsmenn þurfa að bregðast skjótt við tilkynningum um ofbeldi og tryggja verður áhrifaríka eftirfylgni við hvert mál. Tryggja verður að áhrifarík rannsókn og lögsókn á hendur geranda verði framkvæmd þegar slíkt á við og að stuðningi á borð við læknisþjónustu til handa fórnalamba ofbeldis sé komið á fót eða hann efldur.
 
Að lokum hvetja Amnesty International ríkisstjórnir sem vinna að þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna að taka fyrir og fjalla um ofbeldi og misrétti í garð kvenna. Þessi markmið, sem miða að því að útrýma fátækt, innihalda kröfur um aðgang allra að  grunnskólamenntun og jafnrétti kynjanna. Árangur þeirra er mældur í fjölda stúlkna í hverjum bekk, en ekki er innan þeirra tekið á því ofbeldi og misrétti sem gerir það að verkum að stúlkur hrökklast úr skóla eða fá ekki tækifæri til skólagöngu.
 Amnesty International styður aðgerðir ríkja sem miða að því að ná Þúsaldarmarkmiðunum en benda samtökin jafnframt á að til að tryggja jafnrétti kynjanna þarf að koma til aukin skuldbinding ríkja og tafarlausar aðgerðir til að enda ofbeldi gegn stúlkum í skólum. Það er þraut að læra þegar berjast þarf gegn ofbeldi á hverjum degi," samkvæmt tilkynningu frá Amnesty International.


 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Kjörstaðir voru opnaðir í morgun.

Forsetakosningar í Egyptalandi hafnar

06:15 Fyrstu frjálsu forsetakosningar í sögu Egyptalands hefjast í dag, 15 mánuðum eftir að Hosni Múbarak hröklaðist frá völdum. Biðraðir mynduðust þegar kjörstaðir opnuðu í morgun. Meira »
Réttarhöldunum yfir norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik fer senn að ljúka.

Breivik fær tíma til útskýringa

Í gær, 22:15 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik mun fá meiri tíma en til stóð til að tjá sig við lok réttarhaldanna, en áður hafði verið gert ráð fyrir. Búist er við að þeim ljúki 6. júní. Meira »

Tæp 60 þúsund í fangelsi á Kúbu

Í gær, 22:00 Meira en 57.000 manns eru í fangelsi á Kúbu, þar af hafa um 23.000 einhvern starfa og fá greitt fyrir. Hluti þeirra er á bak við lá og slá vegna stjórnmálaskoðana sinna. Meira »

Kennarar og nemendur mótmæla

Frá mótmælunum á Spáni í dag.
Í gær, 20:09 Tugþúsundir kennara og nemenda á Spáni mótmæltu í dag fyrirhuguðum niðurskurði í menntamálum í landinu. Fólkið lagði niður störf og gekk fylktu liði um götur og stræti Spánar, margir í grænum stuttermabolum sem eru orðnir að einkenni mótmælanna. Meira »

Væri upphafið að endalokum evrunnar

Írski þingmaðurinn Richard Boyd Barrett.
Í gær, 19:39 Evrópusambandið mun halda áfram að styðja Írland og veita því neyðaraðstoð ef á þarf að halda jafnvel þó að írskir kjósendur hafni fjármálastöðugleikasáttmála sambandsins. Meira »

Sagðist vera með sprengju í líkamanum

Ein af flugvélum bandaríska flugfélagsins US Airways.
Í gær, 20:32 Bandarískri farþegaflugvél flugfélagsins US Airways, sem var á leiðinni frá París til borgarinnar Charlotte í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum var lent snarlega eftir að frönsk kona sem var farþegi um borð, sagðist vera með „ígræddan búnað“ sem gæti grandað vélinni. Meira »

14 ára skaut á skólafélaga

Lögregla var með mikinn viðbúnað í bænum Memmingen í Suður-Þýskalandi þegar 14 ára piltur skaut ...
Í gær, 19:47 Fjórtán ára drengur skaut á skólafélaga sína í bænum Memmingen, skammt frá borginni München í Suður-Þýskalandi og hljóp síðan á brott. Honum var veitt eftirför og skaut hann þá nokkrum skotum til viðbótar. Engan sakaði og hefur pilturinn nú verið tekinn höndum og mun sæta geðrannsókn. Meira »

Ummæli prests vekja reiði

Fánar samkynhneigðra blakta á lofti í Gleðigöngunni í Reykjavík. Mannréttindi samkynhneigðra eru ekki alls staðar ...
Í gær, 17:31 Ummæli prests baptistasöfnuðar í Norður-Karólínuríki í Bandaríkjunum um að safna ætti öllu samkynhneigðu fólki saman, reka það inn í rétt og láta það síðan deyja drottni sínum, hafa vakið mikla reiði víða. Presturinn lét svo ummælt í predikun sem tekin var upp á myndband og síðan sett á YouTube. Meira »

Gríski harmleikurinn heldur áfram

Christine Lagarde, framkvæmdastjóri AGS.
Í gær, 17:10 Christine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, segir að vinstriflokkarnir í Grikklandi verði að horfast í augu við þann niðurskurð sem nauðsynlegur sé, eigi Grikkir að komast upp úr þeim efnahagslega öldudal sem þeir eru nú í. Meira »

Neyðarástand á Ítalíu

Íbúðarhús sem skemmdist í jarðskjálftanum í bænum Finale Emila skammt frá borginni Modena.
Í gær, 16:46 Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Norðaustur-Ítalíu, þar sem öflugur jarðskjálfti sem mældist 6 stig, reið yfir í fyrradag. Um 5.000 manns eru heimilislaus eftir að fjöldi íbúðarhúsa skemmdist í skjálftanum og ítalska ríkisstjórnin hefur lofað því að fé verði veitt til uppbyggingar. Meira »

Þrjátíu pör reyndust ekki vera gift

Í gær, 17:00 Þrjátíu pör sem gefin voru saman fyrir um ári með borgaralegum hætti í Uppsölum í Svíþjóð eru enn þrátt fyrir það ógift. Í ljós kom að borgarstjórinn sem gaf pörin saman hafði ekki lengur réttindi til þess þegar brúðkaupin fóru fram. Meira »

Þúsundir kynlífsþræla frá Mexíkó

Á hverju ári eru um 100.000 konur í Suður-Ameríku seldar mansali milli landa.
Í gær, 16:15 Á hverju ári eru þúsundir kvenna þvingaðar í vændi og seldar frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Í úttekt BBC á mansali í Mexíkó kemur fram að stúlkurnar séu flestar á aldrinum 14-19 ára og séu þvingaðar til að þjónusta 25-30 karla á hverri vakt. Flestar eru sendar til New York. Meira »

Kæfðu dóttur sína með plastpoka

Shafilea Ahmed.
Í gær, 16:09 Foreldrar breskrar stúlku hafa verið ákærðir fyrir að kæfa dóttur sína með því að troða plastpoka upp í hana og kæfa hana. Fjögur börn þeirra horfðu upp á systur sína myrta, en í dag lýsti eitt þeirra fyrir dómi því sem gerðist þegar stúlkan lést. Meira »

Stuðningur eykst við jafnaðarmenn

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Í gær, 15:51 Stuðningur við þýska jafnaðarmenn hefur aukist verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun fyrir dagblaðið Bild en samkvæmt henni mælast þeir nú með 32% fylgi á meðan helsti keppinauturinn, kristilegir demókratar undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands, mælist með 33%. Meira »

Mótmæli kveðin niður í Bakú

Júróvisjón söngvakeppnin fer ekki framhjá neinum sem staddur er í Bakú í Aserbaídsjan, en mótmæli ...
Í gær, 15:16 Allra augu í Evrópu verða á Aserbaídsjan í kvöld, þegar fyrri forkeppni Evróvisjónsöngvakeppninnar fer fram í Bakú. Raddir mótmælenda þar í landi heyrast hins vegar ekki víða. Í gærkvöldi stöðvaði lögregla í Bakú af hörku um 100 mótmælendur sem kröfðust m.a. frelsunar pólitískra fanga. Meira »

Skaut bíógest vegna deilna um poppkorn

Zikovs skaut Egle, sem var óvopnaður, þrisvar sinnum. Með Egle í för var ung dóttir ...
Í gær, 15:52 Héraðsdómstóll í Lettlandi hefur dæmt mann í 17 ára fangelsi fyrir að hafa skotið mann til bana í kvikmyndahúsi. Lögfræðingurinn Nikolajs Zikovs skaut bankastarfsmanninn Aigars Egle til bana í kjölfar rifrildis, en Zikovs þótti Egle hafa of hátt þegar hann var að borða poppkorn. Meira »

Írskt þjóðaratkvæði í skugga Grikklands

Í gær, 15:16 Þjóðaratkvæðagreiðsla um svonefndan fjármálastöðugleikasáttmála innan Evrópusambandsins fer fram á Írlandi 31. maí næstkomandi en Írar eru einir þjóða innan sambandsins sem munu kjósa um sáttmálann, sem ætlað er að stuðla að efnahagslegum stöðugleika á evrusvæðinu og auknum samruna innan þess, þar sem írska stjórnarskráin krefst þess. Meira »

Tók 7 ára stúlku í gíslingu

Í gær, 15:14 Tékknesk kona gekk inn í skóla í borginni Havirov, stakk kennara nokkrum sinnum með hníf og tók sjö ára stúlku í gíslingu. Lögreglan handtók hana skömmu síðar. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Fótboltaspil
Til sölu er þetta glæsilega fótboltaspil, er eins og nýtt. Verð kr. 10.000 að lá...
225-70-15C
óska eftir heilsárs dekkjum undir sendibíl að stærðinni 225-70-15C. Upplýsingar ...
BAKPOKI SPLUNKUNÝR TIL SÖLU
Mjög góður og öflugur bakpoki til sölu ca 80-115L mörg hólf, fóðraðar ólar, regn...
HÚSGÖGN, HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Allar upplýsingar, verð og myndir eru á heimasíðunni: http://husgogn.net Hægt e...
 
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Til leigu í lágmúla

Til leigu er 75 m² skrifstofuhúsnæði í...