Lík fannst við leit að norskum námsmanni í London

Lundúnalögreglan  fann í morgun lík í íbúð í miðborginni. Ekki hafa verið borin kennsl á líkið en  lögreglan var að leita að 23 ára gamalli norskri konu, sem saknað hefur verið frá því á föstudag í Lundúnum.

Lögreglan segir, að líkið hafi fundist í íbúð, sem ekki er þó íbúð konunnar sem leitað er að. Hins vegar beindist athyglin að íbúðinni við rannsókn á hvarfi konunnar.

Að sögn norska sendiráðsins í borginni hefur konan verið við nám í Lundúnum.  Síðast sást til hennar á skemmtistaðnum Club Maddox aðfaranótt föstudags. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert