Ítreka áhyggjur af kínverskri gervigreind

Xi Jinping, forseti Kína.
Xi Jinping, forseti Kína. AFP

Fyrstu tvíhliða viðræður Bandaríkjanna og Kína um gervigreind verða haldnar á morgun. Fulltrúar stjórnvalda í Washington munu þar reifa áhyggjur sínar af því hvernig þau í Peking hafa beitt tækninni fyrir sig, að sögn bandarískra embættismanna.

Viðræðurnar verða haldnar í Genf og verða fulltrúar beggja ríkja háttsettir embættismenn.

Innan Bandaríkjanna er ekki búist við að neinir formlegir samningar náist eða að Kínverjar reynist mjög samvinnufúsir, en samt sem áður stendur vilji til að opna á samskiptaleiðir til að varpa ljósi á ólíkar skoðanir og áhættumat ríkjanna beggja vegna Kyrrahafsins.

Grafi undan þjóðaröryggi Bandaríkjanna

Bandarískur embættismaður, sem ræðir við fréttastofu AFP gegn því að njóta nafnleyndar, segir þróun gervigreindar í Kína eiga sér stað með hætti sem grefur undan þjóðaröryggi Bandaríkjanna og bandamanna þeirra.

„Við munum ítreka áhyggjur okkar af notkun Kína á gervigreind í því samhengi,“ hefur AFP eftir honum.

Áður hafa stjórnvöld í Washington lýst áhyggjum sínum af því að hróflað verði við lýðræðislegum kosningum með hjálp gervigreindar.

Sérfræðingar í Bandaríkjunum hafa þá talað opinskátt um vaxandi möguleika kínverskrar gervigreindar til að framleiða djúpfalsanir á þekktu fólki, til að villa um fyrir almenningi.

Gervigreind gæti gjörbylt hernaði

Niðurstaða alþjóðlegr­ar ráðstefnu, sem haldin var í Vín­ar­borg fyrr í mánuðinum, var sú að ríki heims­ins ættu að koma á fót reglu­verki yfir gervi­greind­ar­vopn á meðan þau eru enn á fyrstu stig­um þró­un­ar.

Bent var á að rétt eins og byssu­púður og kjarna­vopn, þá gæti gervi­greind gjör­bylt hernaði og raun­ar gert hinar ýmsu deil­ur mann­anna óþekkj­an­leg­ar frá þeim sem nú eru uppi. Og um leið mun ban­vænni.

Með aðstoð gervi­greind­ar má breyta alls kyns vopn­um í sjálf­virk kerfi, þökk sé skynj­ur­um sem stýrt er af al­grími sem svo leyf­ir tölv­unni að sjá og skynja heim­inn, ef svo má segja.

Þar með má hafa uppi á mennsk­um skot­mörk­um, velja þau og ráðast á – eða skot­mörk sem inni­halda mann­eskj­ur – án þess að önn­ur mann­eskja hafi átt þar hlut að máli.

Gervigreind megi ekki koma nærri kjarnavopnum

Banda­rísk stjórn­völd hafa hvatt Kína og Rúss­land til að lýsa því yfir, eins og Banda­rík­in og önn­ur ríki hafa þegar gert, að ein­ung­is mann­eskj­ur muni geta tekið ákv­arðanir um beit­ingu kjarna­vopna. Gervi­greind megi þar hvergi koma nærri.

Rík­is­stjórn­in vest­an­hafs hef­ur að und­an­förnu reynt að dýpka viðræður við Kína um ann­ars veg­ar kjarna­vopna­stefnu ríkj­anna og hins veg­ar vöxt gervi­greind­ar á alþjóðavísu.

Um­fang gervi­greind­ar­tækni bar á góma í víðtæk­um viðræðum ut­an­rík­is­ráðherra ríkj­anna beggja, Ant­onys Blin­kens og Wangs Yi, í Pek­ing þann 26. apríl. Í kjöl­farið var ákveðið að halda fyrstu tví­hliða viðræðurn­ar um mála­flokk­inn. Þær hefjast á morgun, eins og áður sagði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert