Segist ekki hafa myrt börnin sín

Faðir tveggja barna, tveggja og fjögurra ára, sem voru stungin til bana í Arboga í Svíþjóð á sunnudagskvöldið, hefur neitað allri sök. Maðurinn, sem er 28 ára,  handtekinn en nú hefur komið fram að engar sannanir eru fyrir því að hann hafi framið ódæðið.

Móðir barnanna hafði slitið samvistum við barnsföðurinn en hafði samkvæmt sænskum fjölmiðlum nýverið hafið búskap með öðrum manni. Konan sem er 23 ára hlaut alvarlega áverka af völdum hnífsstungu og liggur þungt haldin á sjúkrahúsi.

Samkvæmt fréttavef Dagens Nyheter þar að skera úr um hvort krafist verður áframhaldandi gæsluvarðhalds á hádegi á fimmtudaginn og mun lögreglan nú gera sitt ýtrasta til að finna einhver sönnunargögn í málinu.

Eftir hádegi í dag tilkynnti lögreglan að ekki væri hægt að útiloka að morðinginn væri einvher annar en sá sem er í haldi.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert