Blóðugur dagur í Írak

Meira en 70 manns létu lífið í dag í sprengjuárásum sem gerðar voru í þrem borgum í Írak.  Er þetta einn af blóðugustu dögum í landinu í margar vikur.  Að minnsta kosti 53 létu lífið og 90 særðust þegar sprenging varð í rútu fyrir utan veitingastað í Baquba, norður af Bagdad.

Þá létu þrettán lífið í sjálfsvígsárás sem gerð var á kebab veitingastað í Ramadi, og þrír létu lífið sprengjuárásum í Mosul í norður Írak.   Talið er að herskáir uppreisnarmenn á vegum Al-Qaeda séu ábyrgir fyrir árásunum.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert