Clinton og Obama takast harkalega á
Hillary Clinton og Barack Obama, sem berjast um að verða forsetaefni bandaríska Demókrataflokksins, hafa ráðist harkalega hvort að öðru í kosningaræðum sínum um helgina. Prófkjör flokksins fer fram í Pennsylvaniu á þriðjudag og er talið er að úrslit þess geti ráðið úrslitum um það hvort þeirra verður í framboði í haust. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Clinton og Obama sökuðu hvort annað um það um helgina að heyja neikvæða kosningabaráttu en margir stuðningsmenn flokksins hafa lýst áhyggjum af því að harkaleg barátta þeirra sundri flokknum og dragi úr trúverðugleika hans.
Obama sagði m.a að Clinton tryði á það að segja og gera hvað sem væri til að koma hagsmunamálum í gegn í Washington. Að þannig telji hún að hlutirnir eigi og verði að vera. „Þið eigið því að kjósa hana af því að hún hefur verið lengur í Washington og kann því leikinn betur," sagði hann.
Clinton sagði hins vegar að Obama hafi gripið til niðurrifsaðgerða eftir að þau mættust í kappræðum í síðustu viku. „Það er ekki furða hvað andstæðingur minn hefur verið neikvæður undanfarna daga enda held ég að þið hafið þá séð þann mikla mun sem er á okkur," sagði hún og vísaði þar til kappræðnanna. „Þetta snýst um val á leiðtoga og ég býð ykkur leiðtoga sem þið getið treyst," sagði hún.
Fréttaskýrendur eru flestir sammála um að Clinton verði að sigra í prófkjörinu á þriðjudag til að geta haldið baráttu sinni áfram en þrátt fyrir sigur í Pennsylvaniu mun hún ekki vinna upp forskot Obama.
Samkvæmt síðustu talningu AP fréttastofunnar hefur Obama nú tryggt sér stuðning 1.638 kjörmanna á flokksþingi Demókrataflokksins sem fram fer í ágúst en Clinton hefur tryggt sér stuðning 1.502 kjörmanna.
Bloggað um fréttina
-
Jónas Tryggvi Jóhannsson Hillary skítadreyfari -
Stefán Friðrik Stefánsson Þreyttur leðjuslagur - sjálfskaparvíti demókrata -
Björgvin Guðmundsson Mjótt á munum milli Clintons og Obama -
Smári Jökull Jónsson Gott kerfi ?
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. apríl 2008, Erlent Obama segir að McCain yrði betri en Bush
- Sunnudagur, 20. janúar 2008, Erlent Obama með fleiri kjörmenn?
- Föstudagur, 25. janúar 2008, Erlent Obama með forskot á Clinton
- Sunnudagur, 9. mars 2008, Erlent Obama sigraði í Wyoming
- Þriðjudagur, 6. maí 2008, Erlent Mikil kjörsókn í prófkjörum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































