Kröfugöngur víða um heim

Myndir af Lenín og Stalín voru áberandi í göngu kommúnista …
Myndir af Lenín og Stalín voru áberandi í göngu kommúnista í Moskvu. Reuters

Kröfugöngur hafa verið gengnar í tilefni af 1. maí, baráttudegi verkalýðsins, í þeim löndum þar sem þar sem degi er farið að halla. M.a. er talið, að þúsundir manna, aðallega stuðningsmenn Kommúnistaflokksins, hafi tekið þátt í göngum í Moskvu og fleiri rússneskum morgun.

Lögregla segir að um 30 þúsund manns hafi gengið í höfuðborg Rússlands í tilefni dagsins.Félagar í flokknum Sameinuðu Rússlandi, sem nýtur stuðnings stjórnvalda, gengu niður breiðgötu í miðborginni með spjöld þar sem m.a. stóð: Hagvöxtur er ekki bara fyrir þá ríku, og: Pútín og Medvedev eru bjargvættir æðri menntunar. Forsetaskipti verða í Rússlandi í dag þar sem Dimitrí Medvedev tekur við embætti af Vladímír Pútín.

Gennadí Zjúganov, leiðtogi kommúnista, fór fyrir göngu sem farin var undir merkjum hamarsins og sigðarinnar og myndum af Lenín og Stalín. 

Mótmælandi býr sig undir að grýta lögreglumenn í Istanbul í …
Mótmælandi býr sig undir að grýta lögreglumenn í Istanbul í Tyrklandi þar sem mótmælafundir voru bannaðir. Reuters
Óeirðalögregla var við öllu búin í Istanbul í Tyrklandi í …
Óeirðalögregla var við öllu búin í Istanbul í Tyrklandi í dag. Reuters
Fjölmenn kröfuganga fór fram í Seoul í Suður-Kóreu í dag.
Fjölmenn kröfuganga fór fram í Seoul í Suður-Kóreu í dag. Reuters
Brúður í líki Bandaríkjaforseta voru brenndar í Makassar í Indónesíu.
Brúður í líki Bandaríkjaforseta voru brenndar í Makassar í Indónesíu. Reuters
Alfred Gusenbauer, kanslari Austurríkis, veifar til þátttakenda í 1. maí …
Alfred Gusenbauer, kanslari Austurríkis, veifar til þátttakenda í 1. maí hátíð í Vínarborg. Reuters
Kommúnistar í Úkraínu héldu á myndum af Lenín og Stalín.
Kommúnistar í Úkraínu héldu á myndum af Lenín og Stalín. Reuters
Fána Tíbets var veifað á mótmælafundi í Frakklandi.
Fána Tíbets var veifað á mótmælafundi í Frakklandi. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert